Veisluþjónusta er stór þáttur í rekstri Narfeyrarstofu. Hafa veislur verið unnar bæði í veitingahúsinu en ekki síður utan þess. Sem dæmi um veislustaði má nefna um borð í bátum, í veislusölum, tjöldum, heimahúsum, Norska húsinu, Ráðhúsi Stykkishólmsbæjar, Vatnasafni og ýmiskonar húsnæði eins og skemmum og einnig hafa verið haldnar útiveislur.
Alla jafna er leitast við að bjóða upp á ferska sjávarrétti úr Breiðafirði en hráefni ættað úr nágrenninu er ávallt mjög vinsælt í veislunum frá Narfeyrarstofu. |