Stykkishólmur á vestanverðu Snæfellsnesi er bær með um 1100 íbúa.
Vegna legu sinnar varð Stykkishólmur snemma á öldum miðstöð verslunar, samgangna og þjónustu við Breiðafjörð. Enn er bærinn kjörinn áfangastaður þeirra sem vilja njóta fjölbreytni í náttúrufari og mannlífi við Breiðafjörð. Þaðan eru daglegar skoðunarferðir yfir sumartímann á bátum út á fjörðinn með Sæferðum og ferjan Baldur tengir Snæfellsnesið við Vestfirði með daglegum siglingum yfir á Brjánslæk.
Mikið kapp hefur verið lagt á að varðveita gömul hús bæjarins og setja gömul hús því sterkan svip á miðbæinn og í því elsta, Norska húsinu, er Byggðasafn Snæfellinga. Þar eru oft sérstakar sýningar á vegum safnsins eða listamanna.
Nýja kirkjan á Borginni er áberandi kennileiti af sjó og landi. Hún er opin ferðamönnum og auk venjulegs helgihalds eru þar haldnir tónleikar a.m.k. hálfsmánaðarlega yfir sumarið. Veitingastaði og kaffihús má finna í Hólminnum auk hótela og annara gististaða. Þar er einnig mjög gott tjalstæði, 9 holu golfvöllur og sunlaug með náttúruvatni og rennibraut.
Lúxusgisting í Stykkishólmi
Fjölbreytni náttúru og lífríkis á Snæfellsnesi og við Breiðafjörð er rómuð. Í bæjarlandi Stykkishólms og nágrenni eru greiðar gönguleiðir um fjörur, tanga og góða útsýnisstaði, s.s. Súgandisey við höfnina.
Til Reykjavíkur eru 172 km og þangað eru daglegar áætlunarferðir allt árið.
Ferðafólk getur gengið að allri almennri þjónustu vísri hjá fyrirtækjum og stofnunum í Stykkishólmi og innan seilingar eru frægir sögustaðir og náttúruminjar í Helgafellssveit þar sem starfræktar eru meðal annars hestaleigur, bændagisting og athyglisverð hákarlaverkun sem notið hefur vinsælda meðal ferðafólks.
Aðstaða til íþróttaiðkunar er góð í Stykkishólmi. Sundlaug í tengslum við Íþróttamiðstöðina er opin allt árið. Líkamsræktarstöðin ÁTAK er í Íþróttamiðstöðinni. Auk knattspyrnu- og frjálsíþróttavallarins eru á lóð Grunnskólans malbikaður körfuboltavöllur og sparkvöllur sem eru opnir öllum. Ágætur 9 holu völlur Golfklúbbsins Mostra er sunnan við tjaldstæðið. Klúbbhús Mostra er einnig þjónustuhús fyrir tjaldstæðið á sumrin.
Göngur á nálæg fjöll, s.s. Helgafell, Drápuhlíðarfjall og Kerlingarfjall eru á færi flestra. Ferðafólk kemst í nána snertingu við fjölskrúðugt fuglalíf á siglingu um Breiðafjörð og ekki er ólíklegt að konungur íslenskra fugla, haförninn, sjáist á sveimi í leit að æti.
Kynnast má íbúum sjávardjúpanna, allt frá smæstu kvikindum til stærstu skepna jarðarinnar, og hvergi á landinu eru sjávarföll greinilegri né stórfenglegra að sigla um straumrastir og boðaföll í þröngum eyjasundum.

|