| |
|
Kvöldseðill / Evening Menu
Allir réttir á matseðli bjóðast börnum undir tólf ára aldri í minni stćrðum.
Leitið upplýsinga hjá þjónum.
All dishes on the menu are available for kids under twelve years of age in smaller portions.
Please ask the waiter for information.
| Forréttir - Appetizers |
Tangasúpa
Sjávarréttasúpa, rjómi, hvítlaukur, hvítvíni.
Seafood soup: Cream, garlic, white wine.
Hjallatangi, Tangagata, Tangatá, Svartitangi, Baulutangi, Stekkjartangi eru örnefni tengd
sjónum í Stykkishólmi. |
kr. 1.790 |
Flæðisker
Salat. Beikon, fetaostur, balsamico.
Salad. Bacon, feta cheese, balsamico.
Flæðisker, var eins og nafnið gefur til kynna, sker fram af Stekkjartanga, þar sem spítalinn
stendur. Skerið sem flæddi yfir á háflóði er við veginn sem nú liggur út í Súgandisey og áþví er staðsett minnismerki um sjófarendur sem týnt hafa lífi á Breiðafirði.
|
kr. 1.950 |
Klofningur
Bláskel, þari, fiskur, hægeldaður beitukóngur úr Breiðafirði.
Mussels, kelp, fish, slow cooked common whelk from Breiðafjörður bay.
Eyjan Klofningur er rétt vestan við Flatey. Þar er viti, sérstætt landslag og mikið fuglalíf.
Fjallið Klofningur skilur að Fellsströnd og Skarðsströnd í Breiðafirðinum. Klofningar er
að finna í sjó undan Þingvöllum í átt að Fagurey.
|
kr. 1.950 |
Tveggjalambahólmi
Kjötsúpa, rótargrænmeti, jurtir, rauðvín. Öl í ísaðri krús.
Soup with icelandic lamb, root vegetables, herbs and redwine. Served with icelandic beer in iced mug.
Tveggjalambahólmi finnst á nokkrum stöðum í kringum Breiðafjörð og eru mögulegar skýringar á nafninu þær að sennilega hafa hólmarnir þótt hæfilegir til fitubeitar fyrir tvö lömb, hólminn líkist á með tvö lömb á eftir sér og sá þriðji á e.t.v. svipaðan uppruna, er "nær alveg skorinn í tvennt" eins og það er orðað um Tveggjalambahólma í Helgafellssveit. Sá hólmi liggur í Hrúteyjarál og ekki langt frá má finna örnefnin Gimburey, Lambatangi og Kálfur. |
kr. 1.590 |
| Aðalréttir / Main Courses |
Hjallsey
Pasta, kjúklingur, sveppir, tómatar.
Pasta, chicken, mushrooms, tomatoes.
Hjallsey er önnur tveggja smáeyja rétt utan við höfnina í Stykkishólmi.
|
kr. 2.250 |
Stakksey
Pasta, úrval af sjávarréttum, rjómi, hvítlaukur.
Pasta, variety of Seafood, cream, garlic.
Stakksey er önnur tveggja smáeyja rétt utan við höfnina í Stykkishólmi. Viktoría Áskelsdóttir sjósundkona úr Stykkishólmi lauk sundi sínu yfir Breiðafjörð með því að synda frá Stakksey og inn í höfnina í Stykkishólmi árið 2004. |
kr. 2.250 |
Fagurey
Lambaskanki, rauðvín, jurtakrydd, kartöflur.
Lamb shank in redwine, green spices and potatoes.
Norður af Stykkishólmi liggur Fagurey sem er klettótt að norðanverðu, fremur láglend og grösug.
Eyjan var byggð allt frá landnámsöld til 1937. Hennar er getið í Sturlungu, þar sem Sturla Þórðarson bjó í Fagurey síðustu tíu ár ævinnar og lézt þar árið 1284. Líklegast hefur hann ritað Íslendingasögu og eitthvað fleira í eyjunni. Þjóðsögur er einnig til um eyjuna og er þess getið að oft hafi sést til skipa við Fagurey sem þegar betur var að gáð, sáust ekki.
|
kr. 3.750 |
Súgandisey
Kálfavöðvi, gróft sinnep, léttristað grófskorið grænmeti
Veal, coarse mustard, panfried vegetables.
Súgandisey er eyjan við höfnina í Stykkishólmi. Breiðafjarðarferjan Baldur leggur að við Súgandisey sem tengd var landi árið 1998. Göngustígur er upp í eyjuna sem liggur að fögrum útsýnisstöðum yfir Stykkishólm og Breiðafjörð. Í eyjunni er viti sem reisturvar árið 1897 á Gróttu á Seltjarnarnesi og fluttur í Súgandisey árið 1942. Vitinn var rafvæddur árið 1995. Ljóshæð vitans yfir sjó er 30 m. Eitt lengsta götunafn á Íslandi er kennt við þessa eyju, en frá því að gatan var lögð hefur hún heitið tveimur nöfnum.
Árið 2005 lagði Davíð Sveinsson bæjarfulltrúi það til að Sæbraut fengi nafnið
Súgandiseyjargata sem var samþykkt í nefndum og ráðum sveitarfélagsins sama ár. |
kr. 4.250 |
Hvítabjarnarey Bláskel úr Breiðafirði. Kóríander, hvítlaukur, franskar. Borið fram með öl í ísaðri krús.
Icelandic Blue Mussel from Breidafjordur seasoned, coriander, garlic, fries.
Served with iced mug filled with Icelandic beer.
Hvítabjarnarey er út af Stykkishólmi. Þjóðsögur segja frá því að eyjan dragi nafn sitt af
hvítabirni sem kom á land og lagðist í bás einn sunnan á eynni sem er luktur háum
hamrabjörgum allt í kring. Um eyjuna miðja liggur gjá með stórum steini í miðjunni.
Steinninn er úr sömu bergtegund og finnst í Kerlingarfjalli á Kerlingarskarði. Margar
sagnir eru til um steininn og ein sú að tröllkerlingin í Kerlingarskarði hafi ætlað að tortíma
kirkjunni að Helgafelli en misst marks. Eyjan komst í fréttir í kringum 1970 þegar hún
var aðalvinningur í happdrætti sem efnt var til þegar bygging félagsheimilis Stykkishólms
stóð sem hæst. Fer fáum sögum af því hver hreppti eyjuna í vinning en árið 2001 var hún
seld Gesti Hólm og Símoni Má Sturlusyni. Símon rekur fyrirtækið Íslensk bláskel og útvegar bláskelina á matseðilinn. Munnlegar heimildir herma að aðeins hafi verið dregiðúr óseldum miðum í téðu happdrætti!
|
kr. 3.850 |
Landey
Þorskhnakki, lífrænt ræktað bygg, hvítlaukur, basil.
Fillet of Cod, seasoned with basil and garlic, served with organic barley from East-Iceland
Landey er stór eyja í bæjarlandi Stykkishólms norðan Grunnasunds. Fjaran á milli Landeyjar og lands þornar á hverri fjöru og er þá hægt að ganga út í eyna.
|
kr. 3.900 |
Þórishólmi
Steinbítur, karrý, sesam, sjávargrænmeti, öl í ísaðri krús.
Catfish, curry, sesame, sea vegetables served with icelandic beer in iced mug.
Þórishólmi eða Þóruhólmi er vel sýnilegur þegar horft er í vesturátt út Breiðafjörðinn frá
Stykkishólmi. Nafnið dregur eyjan eða hólminn af þjóðsögu Jóns Árnasonar sem segir frá
Jóni bónda. Bóndinn sá réri oft til fiskjar. Fram við hólma einn skammt frá Súgandisey
dró hann gjafvaxta mey upp á öngli sínum. Þau tóku tal saman og sagðist hún vera Þóra
sækona en Jón þessi leit hana ástaraugum og í stað þess að hleypa henni í sjóinn komust þau að samkomulagi um að hún myndi dvelja hjá honum þrjá vetur. Sagan segir að þau
hafi eignast dóttur sem Þórunn hét en að þrem vetrum liðnum sleppti hann henni við
hólmann, sem síðan heitir Þórishólmi, aftur í sjóinn.
|
kr. 3.700 |
| Eftirréttir - Desserts |
Ostur úr Dölunum
Dalaostur, lauksulta, smjörsteikt rúgbrauð
Cheese from the Walley, onionjam and butterfried ryebread.
Dalamenn eru þekktir ostagerðarmenn en hjá Mjólkursamsölunni í Búðardal er tekið á móti mjólk frá bændum á norðanverðu Snæfellsnesi. Megináhersla dalamanna í ostagerðinni er framleiðsla mygluosta en þar eru framleiddir m.a. Camembert, Dala-Yrja, Dala-Brie og Gullostur. Elísabet Svansdóttir stýrir framleiðslunni en Elísabet bjó í Stykkishólmi á upphafsárum brugghússins Mjaðar og var fyrsti bruggari Jökul bjórsins. |
kr. 1.290 |
Skyrtunnur
Karamelluhúðað skyr með skyrískrapi.
Icelandic Skyr brûlé with Skyrsorbet.
Kerlingarskarð var áður fyrr leiðin yfir fjallgarð Snæfellsness til Stykkishólms. Skarðið er kennt við tröllkerlingu eina sem var á ferð vestur Snæfellsnes að hitta vin sinn Lóndrang. Hún hafði verið að veiðum í Baulárvallavatni og bar silungakippu á bakinu og hafði mér sér hest og á honum klifjar með skyrtunnu og heysátu. Þegar Kerlingin kom að skarðinu og ætlaði að stökkva yfir varð hún að bíða því menn voru þar fyrir. Hún gat ekki stokkið yfir áður en sólin kom upp og varð því að steini.
Kerlingin trónir í Kerlingarskarði en skammt frá eru fjöllin Hestur og Skyrtunnur. |
kr. 1.450 |
Uppáhald Breiðfirsku meyjanna
Rjómahrært skyr og bláberjakrapís frá Erpsstöðum.
Creamed Skyr and Blueberry Sorbet from Erpsstaðir.
The Ladies of Breiðafjörður's favourite!
Fyrrum var allvíða byggð í breiðfirsku eyjunum en nú eru þær flestar í eyði. Sumarbyggð er í þeim mörgum. Sigling milli eyjanna er víða torveld og hættuleg og geta myndast þar harðar rastir, ófærar nema á fallaskiptum. Sagt er um Breiðafjarðareyjar að þegar tröll hafi ætlað að skilja vestfirði frá Íslandi hafi þau mokað og austurinn af því verki séu Breiðafjarðareyjar. Eyjarnar eru sagðar óteljandi en um 2500 er þó talinn líklegur fjöldi. Þær tilheyra Barðastrandar-, Dala- og Snæfellsnessýslum.
|
kr. 1.450 |
Hnallþórur að hætti húsmæðra í Hólminum
Tertur, sjá tertuskáp.
Cakes, see Cake Cupboard
Hnallþórur koma við sögu í skáldsögu Halldórs Laxness „Kristnihald undir jökli“
Eru það stórar og mjög skreyttar tertur og nefndar eftir persónunni Hnallþóru í bókinni,
sem gerist á Snæfellsnesi.
|
kr. 750 |
Handgert Konfekt
Handgert konfekt frá súkkulaðimeistaranum Hafliða Ragnarssyni.
Handmade Chocolates from Icelandic Chocolatier Hafliði Ragnarsson. |
pr. stk.kr. 250 |
Vínseðill / Wines Hádegisseðill / Lunch menu - Hamborgarar / Hamburgers- Kaffi og te/Coffee and Tea
|
|
|
|