Til baka á forsíðu
Húsið
Matseðill
Veisluþjónusta
Myndir
Stykkishólmur

Saga Narfeyrarhúss

Það eru ekki öruggar heildir fyrir bygginagarári Narfeyrarhúss en það mun hafa veið reist fyrir Málfríði Möller, ekkju Möllers apótekara á árunum 1901-1906.

Möller lést árið 1901. Húsið var þá ýmist kallað Málfríðarhús eða Narfeyrarhús. Aage Reinholt Lorange var forstöðumaður dánarbús Möllers og sem prókúruhafi skráður fyrir húseigninni. Á afsalsbréfi frá árinu 1907 er húsið sagt standa við Kirkjustíg, á milli Skyttshúss og kirkjunnar og er eignarlóðin 967,5 fermetrar. Eitthvað virðist hún hafa minnkað síðan.

Talið er að Guðmundur Jónsson frá Narfeyri hafi byggt húsið en ekki eru þó öruggar heimildir fyrir því. Hitt er víst að hann og Jón bróðir hans unnu við húsbygginar á þessum tíma. Guðmundir átti svo húsið frá árinu 1922-1955 og bjó í því á árunum sem hann var forkólfur verkalýðsfélagsins hé í bæ, Kaupfélags verkamanna og samvinnuútgerðarinnar. Guðmundur stofnaði meðal annars útgerð Baldurs sem lengi var eitt af “kennileitum” b æjarins. Næsti eigandi Narfeyrarhúss var Lárus Guðmundsson. Hann festi kaup á húsinu 4. maí 1955

Arnaldur Árnason var svo síðasti einsaklingurinn sem átti húsið, hann rak þar leiktækjasal og billijardstofu í dálítinn tíma.

1.júní 1996 festa félagarnir Baldur Þorleifsson trésmiður og Þorkell Þorkelsson málari kaup á Narfeyrarhúsi. Þeir gerðu húsið upp að utan og komu því að mestu leiti í upprunalegt horf. Breyttu þeir eftri hæð hússins í íbúð en létu neðri hæðina eiga sig. Þar hafði þá til skamms tíma verið rekin hárgreiðslustofa og skrifstofa útgerðarfélags. Árið 1999 festi Ingibjörg Björnsdóttir kaup á húsinu. Ingibjörg var ættuð frá Helgafelli og mörgum kunn fyrir störf sín við áhugaleikhús í landinu. Í byrjún júní árið 2000 opnaði Ingibjörg kaffihúsið Narfeyrarstofu í húsinu. Bjó hún sjálf á efri hæðinni.

Vorið 2001 festu núverandi eigendur kaup á húsinu. Hjónin Steinunn Helgadóttir og Sæþór H Þorbergsson matreiðslumaður. Í fyrstu voru þau með kaffiihúsið í nánast óbreyttri mynd. Bættu svo smátt og smátt við matseðilinn og buðu uppá lengri opnunartíma. Í júní árið 2002 opnuðu þau svo efti hæð hússins með glæsilegum veitingasal “Sjávarloftið”

Á Sjávarloftinu er einn glæsilegasti veitingasalur landsins. Hlýtt og rómantískt andrúmsloft og notaleg þjónusta. Útsýnið yfir Stykkishólmshöfn gefur staðnum ævintýralegan svip. Á matseðli Sjávarloftsins kennir margra grasa og er sjávarfangi úr Breiðafirði gerð góð skil.

Vínseðill hússins er óvenju glæsilegur af litlum veitingasað á landsbyggðinni að vera. Í Narfeyrarhúsi hefur í gegnum tíðina verið ýmiskonar starfsemi. Vitað er að þar var sjoppa Kaupfélagsins í nokkur ár milli 1970 og 1980. Um tíma var þar vöruafgreiðsla Höskuldar og Guðmundar. Leikfélagið Grímnir hafði aðstöðu í húsinu og um tíma gekk húsið undir nafningu Grímnishús. Þá er vitað að nokkrir núlifandi “Hólmarar” eru fæddir í Narfeyrarhúsi.

Ægir Jóhannsson, fær þakkir fyrir veitta aðstoð um uppruna hússins. Einnig var stuðst við gömul plögg í eigu skrifstofu Sýslumannsins í Stykkishólmi.

Kristín Ben