Brátt líður að hausti og ferðamönnum fer fækkandi.  Af því tilefni gerum við smávægilegar breytingar á matseðlinum.  Áfram kappkostum við að bjóða upp á úrvals hráefni úr héraði, sé þess nokkur kostur.

Við tókum ísvél í gagnið í sumar og höfum lagað margar gerðir af ís bragðbættar t.d. með rabbabara, berjum, gæðavanillu og úrvalssúkkulaði.  Erum búin að ná tökum á græjunni og getum framleitt ís að þínum óskum!